Þjóðskjalasafn Íslands hefur boðað að næsta eftirlitskönnun hjá afhendingarskyldum aðilum muni fara fram í febrúar næstkomandi. Eru þið tilbúin? Við skiljum mikilvægi þess að vera undirbúin!
Nýttu þér sérþekkingu okkar!
Er til staðar skjalavistunaráætlun og er hún í samræmi við reglur?
Er stuðst við reglur og leiðbeiningar Þjóðskjalasafns um skjalavörslu og skjalastjórn?
Er skráning mála og málsgagna í samræmi við reglur?
Er notkun málalykla í samræmi við reglur?
Eru tölvupóstar sem varða mál varðveittir?
Er búið að tilkynna rafræn gagnasöfn sem eru á ábyrgð viðkomandi aðila?
Er til staðar heimild fyrir eyðingu skjala?
Það þurfa að liggja fyrir upplýsingar um hversu margir hillumetrar eru af pappírsskjölum í skjalageymslu.
Það þurfa að liggja fyrir upplýsingar um tilkynningar, samþykktir og ákvarðanir sem hafa verið teknar varðandi skjalasafni.
Hér má sjá tilkynningu Þjóðskjalasafns Íslands í heild sinni