Gagnavarslan ehf. er óháð þekkingarfyrirtæki sem veitir ráðgjöf og heildarlausnir í stýringu upplýsinga og varðveislu.
Gagnavarslan býður upp öfluga ráðgjöf sérfræðinga á sviði upplýsinga- og gæðastýringar. Þá hefur fyrirtækið þróað upplýsingastýringakerfið CoreData sem byggir á opnum og frjálsum hugbúnaði. Fyrirtækið rekur sérhæft vörsluhúsnæði sem búið er fullkomnu öryggiskerfi þar sem varðveitt eru skjöl, munir, menningarminjar og listaverk. Ennfremur veitir fyrirtækið þjónusta við skönnun, skráningu og prentun.
Sprotafyrirtæki á Ásbrú
Höfuðstöðvar Gagnavörslunnar eru á Ásbrú í Reykjanesbæ þar sem fram hefur farið mikil uppbygging í kjölfarið á brotthvarfi hersins af Keflavíkurflugvelli. Gagnavarslan tekur þar þátt í nýsköpun ásamt fjölda annara sprotafyrirtækja og hefur fest kaup á 4000 fm húsnæði sem áður hýsti vörulager og stóra matvöruverslun fyrir hermenn og fjölskyldur þeirra.
Húsnæðið geymir nú skjöl, muni, listaverk og menningarminjar þar sem kröfum um öryggis- og aðgangsstýringar er fylgt eftir til hins ýtrasta
Útibú Gagnavörslunnar er í Hafnarfirði þar sem fram fer hugbúnaðarþróun og ráðgjöf til fyrirtækja.




