Nútímalegt vefkerfi byggt á opnum, frjálsum hugbúnaði
Gagnavarslan hefur þróað upplýsingastýringarkerfið CoreData sem byggir á nútímalegri nálgun á stýringu upplýsinga. Áhersla er lögð á notendavænt og lipurt viðmót og tengjast notendur kerfinu yfir vefinn hvar sem er í öruggu umhverfi. Stór hugbúnaðardeild vinnur að verkefninu en lausnir eru unnar í samstarfi við ráðgjafa Gagnavörslunnar á sviði skjala- og upplýsingastýringar.

Hagkvæm lausn
Kostnaður notenda er umtalsvert lægri þar sem fyrirtæki leigja aðgang að þjónustu CoreData á vefnum. Þannig er kostnaður á hvern notanda þekktur og rekstur kerfisins innifalinn í áskriftargjaldi. Ekki er greitt sérstaklega fyrir hugbúnaðarleyfi eða uppfærslur auk þess sem CoreData krefst ekki annarra hugbúnaðar- eða stýrikerfa.
CoreData býður sveigjanlegt rekstrarumhverfi og ekki verður lengur þörf fyrir sameiginleg drif.

Öryggi
CoreData byggir sem mest á opnum stöðlum. Öflug samþætting er við Microsoft fyrirtækjaumhverfi auk þess að styðja Linux og Apple OSX. Áhersla er lögð á öryggi, áreiðanleika og stöðluð vinnubrögð. CoreData býður sveigjanlegt umhverfi t.d. LDAP stuðning, SSO með Microsft auk þess að styðja þjónustu SOAP og REST. CoreData vinnur mjög vel með Microsoft lausnum en gerir ekki kröfu um að viðskiptavinur sé með þær. Aðgengi er dulkóðað og skráð og afritun örugg.

Einfalt notendaviðmót og öflug leit
Notendaviðmót CoreData er einfalt og áhersla er lögð á öfluga leit. Það eykur líkurnar á því að notkun á skjalastýringakerfi verði almenn og starfsmenn geti tileinkað sér vinnu við skráningu gagna sem verða til í starfseminni.