Fréttir

Dagný Gísladóttir

Ný útgáfa af Nuxeo ECM með einingum frá Gagnavörslunni

Dagný Gísladóttir segir frá.   |   01. júní 2011

Það er okkur mikil ánægja að vera orðnir virkir þátttakendur í samfélaginu um frjálsan hugbúnað í tengslum við skjalastýringarkerfið Nuxeo ECM.

Það hefur verið stefna okkar frá upphafi að nota frjálsan hugbúnað og að vera um leið stuðningsaðilar í þessum sömu verkefnum með því að leggja okkar af mörkum til baka.

Nuxeo er afar öflugt ECM kerfi sem einnig er frjáls hugbúnaður.  Við höfum byggt CoreData að hluta til á Nuxeo auk annarra eininga. Með því að byggja á Nuxeo

Dagný Gísladóttir

Morgunverðarfundur Gagnavörslunnar

Dagný Gísladóttir segir frá.   |   31. maí 2011

Gagnavarslan býður til morgunverðarfundar í Nauthóli miðvikudaginn 1. júní kl. 8:00-10:00.

Dagskrá

8:00           Morgunmatur í boði Gagnavörslunnar

8:30           Brynja Guðmundsdóttir býður góðan dag J

8:40           Allt frá skjalavörslu til hágæða tæknilausna! Hvernig getur Gagnavarslan gagnast þér?

9:10           Saga viðskiptavinar

9:20           CoreData ECM – bylting í skjala- og upplýsingastjórnun?

 

Dagný Gísladóttir

Gagnavarslan tók þátt í opnum degi á Ásbrú

Dagný Gísladóttir segir frá.   |   02. maí 2011

Gagnavarslan tók þátt í opnum degi í Ásbrú sem haldinn var um sl. helgi.
Fjöldi fólks lagði leið sína í Keilishúsið þar sem við höfðum byggt píramída úr sérhæfðum vörslukössum Gagnavörslunnar.

Á þriðja hundrað gestir tóku þátt í getraun Gagnavörslunnar sem fólst m.a. í því að telja kassana í píramídanum.

Við munum draga einn vinningshafa úr réttum lausnum 15. maí en hinn heppni/hin heppna fær stafræna myndavél frá Canon í verðlaun!