Fréttir

laufey

Morgunverðarfund frestað

laufey segir frá.   |   29. nóvember 2011

Ákveðið hefur verið að fresta morgunverðarfundinum „Upplýsingaaldan – tækifæri til hagræðingar!“  fyrir forstöðumenn ríkisstofnanna sem átti að vera  þriðjudaginn 29. nóvember fram á nýtt ár.

Ríkiskaup er á sama degi með innkaupadag, en það hentaði ekki að hafa þessa tvo viðburði á sama degi. Gagnavarslan ákvað því að fresta sínum viðburði fram á nýtt ár.

Ný dagsetning hefur ekki verið ákveðin ennþá, en um leið hefur verið gert verður ný tilkynning sett á vefinn.

Við erum að sjálfsögðu tilbúin að

laufey

Morgunverðarfundur : Upplýsingaaldan – tækifæri til hagræðingar!

laufey segir frá.   |   23. nóvember 2011

Morgunverðarfundur fyrir forstöðumenn ríkisstofnana

Þriðjudaginn 29. nóvember 2011, kl. 8.00 – 10.00 á Nauthóli

Gagnavarslan býður forstöðumönnum ríkisstofnana til morgunverðarfundar þar sem fjallað verður um lausnir sem lúta að hagræðingu og skilvirkni í rekstri.

Dagskrá

8.00   Morgunverður í boði Gagnavörslunnar

8.15   Brynja Guðmundsdóttir, forstjóri Gagnavörslunnar
Helstu verkefni stjórnenda næstu árin

8.25   Haukur Hafsteinsson, framkvæmdastjóri Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins
Hagræðing í rekstri LSR – hagræðing með virkri upplýsingastjórnun

8.35   Laufey Ása Bjarnadóttir, framkvæmdastjóri ráðgjafasviðs Gagnavörslunnar
Uppbygging og

Dagný Gísladóttir

Mikilvægir eiginleikar hjá upplýsingastjórum og gæðastjórum

Dagný Gísladóttir segir frá.   |   05. september 2011

Hvað er það sem upplýsingastjóri eða gæðastjóri þarf að hafa til að bera?

Sem dæmi um góða eiginleika sem  upplýsingastjórar og gæðastjórar þurfa að búa yfir eru orka, úthald og seigla því ekki má missa sjónar á lokatakmarkinu sem er góð stjórnun á upplýsingum og gæðum.

Þessir starfsmenn þurfa að hafa góða samskiptahæfileika því starfinu fylgir mikil upplýsingamiðlun. Tillitssemi skiptir einnig máli, að hlusta, byggja upp traust, jákvætt andrúmsloft og síðast en ekki síst að láta sig varða starfsemi fyrirtækisins

Dagný Gísladóttir

Myndir frá ráðstefnu Gagnavörslunnar í Hörpu

Dagný Gísladóttir segir frá.   |   31. ágúst 2011

Alls sóttu 100 gestir ráðstefnu Gagnavörslunnar Á stjörnubraut – virk stjórnun upplýsinga og gæða sem haldin var í Kaldalóni, fyrirlestrarsal Hörpunnar föstudaginn 26. ágúst sl.

Kynnt var nýjasta útgáfa á CoreData ECM kerfi Gagnavörslunnar en upplýsingastýringakerfið býður upp á áhugaverðar lausnir þar sem einfaldleiki og notendavænleiki er í fyrirrúmi. Fram kom að það er einfalt að búa til flókið kerfi – en flókið að búa til einfalt kerfi!

Ráðgjafar Gagnavörslunnar kynntu ýmsa þætti sem hafa þarf í huga við innleiðingu

Dagný Gísladóttir

Takk fyrir þátttökuna!

Dagný Gísladóttir segir frá.   |   29. ágúst 2011

Við þökkum öllum gestum okkar sem sóttu ráðstefnu Gagnavörslunnnar Á stjörnubraut — virk stjórnun upplýsinga og gæða sem haldin var í Hörpu sl. föstudag.

Góð þátttaka var á ráðstefnunni en yfir 100 gestir hlýddu á fyrirlestra um virka stjórnun upplýsinga og gæða með hagræði og skilvirkni í rekstri fyrirtækja og stofnana að leiðarljósi.

Kynnt var nýjasta útgáfa CoreData ECM upplýsingastjórnunarkerfis Gagnavörslunnar sem býður upp á áhugaverðar lausnir með einfaldleika og notendavænleika í fyrirrúmi.

 

 

 

Dagný Gísladóttir

Góð þátttaka í ráðstefnu í Hörpu

Dagný Gísladóttir segir frá.   |   25. ágúst 2011

Góð þátttaka er á ráðstefnu Gagnavörslunnar sem haldin verður í Kaldalóni í Hörpu á morgun kl. 13 – 16:30 undir yfirskriftinni: Á stjörnubraut – virk stjórnun upplýsinga og gæða en þegar hafa yfir 100 manns skráð þátttöku.

Á ráðstefnunni verður fjalla um virka stjórnun upplýsinga og gæða með hagræði og skilvirkni í rekstri fyrirtækja og stofnana að leiðarljósi.

Kynnt verður nýjasta útgáfa CoreData ECM upplýsingastjórnunarkerfis sem býður upp á áhugaverðar lausnir með einfaldleika og notendavænleika í fyrirrúmi.

Hér má hlaða

Dagný Gísladóttir

Á stjörnubraut – dagskrá ráðstefnu í Hörpu 26. ágúst

Dagný Gísladóttir segir frá.   |   17. ágúst 2011

Ráðstefna Gagnavörslunnar verður haldin í Kaldalóni í Hörpu föstudaginn 26. ágúst 2011 kl. 13:00 til 16:30.

Á stjörnubraut – virk stjórnun upplýsinga og gæða

Dagskrá:

12:40-13:00     Móttaka og skráning
13:00-13:15      Upplýsingastjórar – stjörnur í stjórnendateymið! Brynja Guðmundsdóttir forstjóri Gagnavörslunnar
13:15-13:40      Rafræn starfsemi – öryggi og gæði upplýsinga.  Laufey Ása Bjarnadóttir  framkvæmdastjóri ráðgjafasviðs hjá Gagnavörslunni
13:40-14:25      CoreData ECM upplýsingastjórnunarkerfi. Hannes Pétursson framkvæmdastjóri hugbúnaðarþróunar hjá Gagnavörslunni
14:25-14:40      Reynslusaga viðskiptavinar. Steinunn Guðbjartsdóttir formaður Slitastjórnar Glitnis

jonas

Á stjörnubraut – Ráðstefna í Hörpu 26. ágúst

jonas segir frá.   |   04. ágúst 2011

Á stjörnubraut – virk stjórnun upplýsinga og gæða.  Ráðstefna Gagnavörslunnar verður haldin í Kaldalóni í Hörpu föstudaginn 26. ágúst 2011 klukkan 13:00 til 16:30.

Meginþema ráðstefnunnar er virk stjórnun upplýsinga og gæða með hagræði og skilvirkni í rekstri fyrirtækja og stofnana að leiðarljósi.

Kynning verður á nýjustu útgáfu CoreData ECM upplýsingastjórnunarkerfis sem býður upp á áhugaverðar lausnir með einfaldleika og notendavænleika í fyrirrúmi.

Vinsamlegast skráið þátttöku á vidburdir@gagnavarslan.is

jonas

Kaffinámskeið á Bæjarhrauni

jonas segir frá.   |   21. júlí 2011

Hópur starfsmanna lauk nýlega námskeiði í meðhöndlun og lögun á kaffi eftir kristínskri aðferðarfræði.

Kristinskí skólinn í kaffilögun er nefndur eftir kaffivél fyrirtækisins “Kristín” sem staðsett er í Kristínarkaffi.   Það voru þeir Steinar Hugi Sigurðarson og Árni Hermann Reynisson sem jusu af nægtarbrunnum sínum í kaffifræðum og skilningi á atferli og eðli kaffibauna.

Þeir starfsmenn sem luku kúrsinum hafa fengið vottun og er það mikil heiður fyrir fyrirtækið að hafa innan sinna raða slíkan fjölda sérfræðinga á þessu sviði.

Dagný Gísladóttir

Ný útgáfa af Nuxeo ECM með einingum frá Gagnavörslunni

Dagný Gísladóttir segir frá.   |   01. júní 2011

Það er okkur mikil ánægja að vera orðnir virkir þátttakendur í samfélaginu um frjálsan hugbúnað í tengslum við skjalastýringarkerfið Nuxeo ECM.

Það hefur verið stefna okkar frá upphafi að nota frjálsan hugbúnað og að vera um leið stuðningsaðilar í þessum sömu verkefnum með því að leggja okkar af mörkum til baka.

Nuxeo er afar öflugt ECM kerfi sem einnig er frjáls hugbúnaður.  Við höfum byggt CoreData að hluta til á Nuxeo auk annarra eininga. Með því að byggja á Nuxeo