jonas

jonas

Á stjörnubraut – Ráðstefna í Hörpu 26. ágúst

jonas segir frá.   |   04. ágúst 2011

Á stjörnubraut – virk stjórnun upplýsinga og gæða.  Ráðstefna Gagnavörslunnar verður haldin í Kaldalóni í Hörpu föstudaginn 26. ágúst 2011 klukkan 13:00 til 16:30.

Meginþema ráðstefnunnar er virk stjórnun upplýsinga og gæða með hagræði og skilvirkni í rekstri fyrirtækja og stofnana að leiðarljósi.

Kynning verður á nýjustu útgáfu CoreData ECM upplýsingastjórnunarkerfis sem býður upp á áhugaverðar lausnir með einfaldleika og notendavænleika í fyrirrúmi.

Vinsamlegast skráið þátttöku á vidburdir@gagnavarslan.is

jonas

Kaffinámskeið á Bæjarhrauni

jonas segir frá.   |   21. júlí 2011

Hópur starfsmanna lauk nýlega námskeiði í meðhöndlun og lögun á kaffi eftir kristínskri aðferðarfræði.

Kristinskí skólinn í kaffilögun er nefndur eftir kaffivél fyrirtækisins “Kristín” sem staðsett er í Kristínarkaffi.   Það voru þeir Steinar Hugi Sigurðarson og Árni Hermann Reynisson sem jusu af nægtarbrunnum sínum í kaffifræðum og skilningi á atferli og eðli kaffibauna.

Þeir starfsmenn sem luku kúrsinum hafa fengið vottun og er það mikil heiður fyrir fyrirtækið að hafa innan sinna raða slíkan fjölda sérfræðinga á þessu sviði.