Mikilvægir eiginleikar hjá upplýsingastjórum og gæðastjórum
Hvað er það sem upplýsingastjóri eða gæðastjóri þarf að hafa til að bera?
Sem dæmi um góða eiginleika sem upplýsingastjórar og gæðastjórar þurfa að búa yfir eru orka, úthald og seigla því ekki má missa sjónar á lokatakmarkinu sem er góð stjórnun á upplýsingum og gæðum.
Þessir starfsmenn þurfa að hafa góða samskiptahæfileika því starfinu fylgir mikil upplýsingamiðlun. Tillitssemi skiptir einnig máli, að hlusta, byggja upp traust, jákvætt andrúmsloft og síðast en ekki síst að láta sig varða starfsemi fyrirtækisins



