Morgunverðarfund frestað

laufey segir frá.   |   29. nóvember 2011

Ákveðið hefur verið að fresta morgunverðarfundinum „Upplýsingaaldan – tækifæri til hagræðingar!“  fyrir forstöðumenn ríkisstofnanna sem átti að vera  þriðjudaginn 29. nóvember fram á nýtt ár.

Ríkiskaup er á sama degi með innkaupadag, en það hentaði ekki að hafa þessa tvo viðburði á sama degi. Gagnavarslan ákvað því að fresta sínum viðburði fram á nýtt ár.

Ný dagsetning hefur ekki verið ákveðin ennþá, en um leið hefur verið gert verður ný tilkynning sett á vefinn.

Við erum að sjálfsögðu tilbúin að koma í  heimsókn til ykkar og kynna fyrir ykkur þjónustu Gagnavörslunnar, sé þess óskað.  Endilega hafið samband við Laufey Ásu Bjarnadóttur, laufey@gagnavarslan.is, eða Brynju Guðmundsdóttur, brynja@gagnavarslan.is, eða í síma Gagnavörslunnar 553-1000 ef þið óskið eftir nánari upplýsingum eða kynningu.

Starfsfólk Gagnavörslunnar.